Sorry sorryInga S Halldórsdóttir

Halló allir sorrý hvað það kemur lítið frá mér en ég er bara svo upptekin af því að byrja í nýjum vinnum ....þær eru núna orðnar 7624 það sem af er árinu tíhí og í núverandi jobbi fékk ég nýtt símanúmer sem all mörg ykkar urðu vör við tíhí ég ýtti víst aðeins of oft á send takkan og var algengt að fólk fengi frá 5 og upp í 30 sms tíhí Ullandi já já ég er kannski pínu athyglisjúk ég viðurkenni það fúslega , en ég meina hvað á maður að gera ef manni finnst maður gleymdur ...... nei ég bara segi svona tíhí Nú svo er ég líka búin að vera voða upptekin við að deita ....það er nú engin smá vinna marr úff en gaman maður össs ætla nú að reyna að haga mér í þetta skiptið svo hann hlaupi ekki strax .....þetta er nefnilega ansi efnilegt eintak Svalur silfurgráhærður og sexy fyrir allan peninginn Ullandi

jæja svona fer þetta í bili óritskoðað með öllum stafsettninga villunum og allt .....leiter gater

Inga S Halldórsdóttir

Sælt veri fólkið ég er hér nánast í alsælu síðan í gærkvöldi vegna þess að ég fékk svo gott að borða nammmmm. Það kom nú reyndar ekki til af góðu en þannig er að Guðmundur stjúpi minn var lagður inn á spítala í síðustu viku vegna hjartslátta truflana. Hann er nú allur að braggast læknarnir tóku hann af öllum lyfjum og eru að finna upp nýjan kokteil sem hentar honum, enda maðurinn á svo miklum lyfjum að hann verður væstum saddur af þeim á morgnana. Jæja þannig er að Guðmundur er óttalegur gikkur í mat og það á nú ekki við hana mömmu mína, svo hún notar náttúrlega tækifærið og fer út að borða á framandi stöðum á meðan Guðmundur nærist á ljúffengu sjúkrahúsfæðinu. Hlæjandi Í gærkvöldi var ég svo heppin að vera boðið með og fundum við dásamlega krúttlegan stað á Frakkastígnum sem heitir Indian Mango og ó mæ god það var æði. Við pöntuðum okkur sitthvorn réttin og svo spurði litli krúttlegi indverski þjónninn hvort við vildum sterkt eða medium, við erum náttúrlega hetjur og sögðum sterkt!! hann varð skrítin á svip og spurði eru þið vissar? já já sögðum við .....viljið þið íslenskt sterkt eða indverskt sterkt? .....við viljum bara indverskt sterkt sögðum við og hann varð enn skrítnari á svipinn en lét gott heita og skrifaði það á pöntunina hjá sér. Hann var voða duglegur að reyna að tala íslensku og var óskaplega krúttlegur þegar hann var að hvetja mig til að kaupa indverskan bjór frekar en gamla góða Calsbergin "þessi bjór er mjög vinsamlegt" en átti náttúrlega við að hann væri mjög vinsæll hehe. Hvað gat ég gert annað en að kaupa indverska bjórinn sem stóð algjörlega fyrir sínu þegar logandi heitir réttirnir runnu niður í magann.... Við mamma höldum þó að hann hafi látið okkur fá "íslenskt sterkt" því við þoldum þetta nokkuð vel, það losnaði aðeins um stíflur í nefi en við sluppum algjörlega við tár og annan sviða, en bragðið var himneskt. Ég mæli sérstaklega með þessum stað og það er alveg ljóst að ég mun heimsækja hann við fyrsta tækifæri aftur. 
Ég læt þetta duga í bili og ætla nú að renna upp í Borgarfjörð í sumarbústað með fallegum manni  og rauðvínsflösku og eiða restinni af Hvítasunnunni þar.
Þið heyrið frá mér fljótlega aftur bæ í bili

Var týnd en er nú fundin eða.....Inga S Halldórsdóttir

  Shitt ég held ég hafi ekki bloggað síðan fyrir páska .....páskarnir fóru í mikla reiðmennsku og var ég í hesthúsinu nánast öllum stundum yfir hátíðina í afar góðum félagsskap. Síðan þá er búið að fara í hinar ýmsustu svaðilfarir á hestum og sannaðist  það um síðustu helgi hvað ég hreint ótrúlega heppin því ég flaug af baki í stórum sveig og lenti á hausnum af krafti svo undir tók í fjöllunum....segja mér áhorfendur ...... jamm daginn eftir horfði ég svo á Sjálfstætt fólk þar sem talað var við konu ,lamaða frá hálsi eftir að hafa dottið af hestbaki, og áttaði mig á því hvað ég á góða verndara, líklega þarna hinumegin. Halelúja, amen og 7,9,13 nú og í síðustu viku fór ég á merina mína (ekki sú sama og ég var á um helgina) og hún stóð bara stöð svo ég sló hana dálítið hressilega, prjónaði þá ekki þessi elska nánast afturfyrir sig svo ég rann af baki en meiddi mig ekkert í þetta skiptið...... ég ætti kannski að skoða það hvernig ég er tryggð Óákveðinn ......... Ekki fór ég nú alveg ein í reiðtúr helgarinnar en skemmst er frá því að segja að það flugu allir af baki nema einn hvort sem menn voru vanir eða óvanir, þetta var líka túrinn sem segir fólki hve hjálmurinn er mikilvægur því hann bjargaði lífi a.m.k tveggja í hópnum, sjálfri mér og vini mínum sem fékk hóf í hausinn..... Eini hesturinn sem reyndist hrekklaus í ferðinni var merin mín sem ég náttúrlega lánaði vinkonu minni sem var sú eina sem hékk á baki alla leið.

Nú eins og frægt er orðið fór ég á hárréttu augnabliki í fasteignabransann en hann Davíð vinur minn var ekki alveg ánægður með það og ákvað í samvinnu með Geir vini sínum að vinna hart að útrýmingu þeirrar stéttar .... góðir kallar þessi prinsar. Þetta er nú samt ekki eins slæmt og það hljómar en þeir hæfustu munu lifa og standa sterkari eftir, ég hins vegar ákvað að ýta á pásu og snúa mér að launuðum vinnum á meðan að þetta gengi yfir, ég er þó með eina tánna þarna inni en þá og veit að mér verður tekið opnum örmum þegar ég hef fjárhagslega getu í svona rússíbana. Brosandi 
Svo kemur bara meira næst

Long time no seInga S Halldórsdóttir

Jesús minn hvað það er langt síðan ég bloggaði síðast ....bara næstum því skömm að þessu. ég er að vísu búin að liggja í skelfilegri flensu alla síðustu viku, og þá meina ég liggja reisti varla höfuð frá kodda fyrstu 3 dagana og orkaði ekki einusinni að tala, og þá er mikið sagt þegarég er annarsvegar Brosandi.  Inga litla og hesturinn hehe það er nú svolítið skemmtileg saga þannig vill til að um síðustu helgi þá fór ég í reiðtúr og allt í góðu með það ég og Önnu Guðnýjar Bjössi vinur minn ásamt fleyri strákum í hesthúsinu lögðum á og lögðum af stað. Rétt í því kemur mamma og við stoppum til að heilsa uppá hana. Það líkaði merinni ekki og fór að kasta upp rassinum og og hopppa og tralla með tóma stæla og ætlaði að rjúka heim. Pínu rodeo fyrir mömmu en allir sem þekkja til mín vita að mamma heldur alltaf að ég sé í bráðri lífshættu, hvað sem ég tek mér fyrir hendur. jæja Bjössi tók í merina og teimdi mig niður fyrir bílaumferð og þá var hún til friðs þangað til að við komum að undirgöngum þar sem hún vissi að hún gat farið heim og jújú hún ætlaði sko að taka þar völdin og rjúka með mig heim og lét öllum illum látum prjónaði og kastaði rassinum í allar áttir hehe. Þarna fauk í mig og og að sjálfsögðu reyndist ég frekari á endanum , jeminn hvað ég var montin hehe sérstaklega fyrir það að hanga á baki heheheBrosandi "það sleppur ekki svo auðveldlega það sem milli læranna kemur " nýr málsháttur sko Svalur tíhíhí grínHlæjandi

Einn af þessum dögumInga S Halldórsdóttir

Í dag hringdi í mig maður og byrjaði að hrauna yfir mig og hvað djöfluls drasli ég væri að pranga inn á hann og hverkonar rassvasafyrirtæki ég væri eiginlega með þar sem það væri statt á Hornafirði þar sem væru bara 1500 manns og þetta væri bara djöfulsins ruggl óg að það væri nú alveg vonlaust að fá þjónustu frá svona aumingjum utan að landi....já sæll!!!!  Ég fékk ekki að komast að!!  en loks náði ég að stoppa hann eftir hálftíma hraun, bað hann um að eiga góðan dag og sagðist hringja á morgun þá kæmi nýr og betri dagur. Eigum við að ræða svona /%$%$/&//(&%$&%(/(/&%&%$&(/&(/&/vitaÖskrandi KRÆST hvað menn geta verið geðveikir ...... og við skulum átta okkur á því að HANN hringdi í mig!!!! hehe ég vona bara að konan hans geri eitthvað fyrir hann greyið...... Já og ekki nóg með það svo voru allir strákarnir í vinnuni á túr líka!! Hey það er ég sem á einkarétt á því....... úff aumingja litla ég


Annars var dagurinn bara voða góður hjá mér .....Brosandi

KonudagurinnInga S Halldórsdóttir

Kæru vinkonur til hamingju með daginn ! ég varði megninu af deginum í hesthúsunum og er þatta með besta konudegi sem ég hef átt a.m.k. síðastliðin sex ár! Fór í tvo ágæta reiðtúra og komst að því að þar er mikil virðing borin fyrir mönnum og dýrum og já ekki síður konum! Allstaðar glumdu við hamingjuóskir með daginn og satt best að segja hef ég aldrei fengið jaf margar hamingjuóskir á konudegi eins og í dag. Það mættu án efa margir temja sér siði þessa samfélags og framkomu a.m.k miðað við daginn í dag við okkur konurnar Glottandi við erum allar littlar prinsessur og það þarf að koma leifa okkur að finna að við séum pínu sérstakar. Meira að segja svona stelpur eins og ég sem í hræðslunni á til að vera pínu stigg og hryssingsleg vil líka fá að vera prinsessa  Brosandi

Þetta var speki dagsins heyrumst síðar.......

Rauðvin og spádómurInga S Halldórsdóttir

OMG hvað það var gaman í gær ...við hittumst 3 vinnkonur allar fyrrverandi vinnufélagar af sitt hvorum vinnustaðnum...kannski flókið hehe en allavega þá var tilefnið það að drekka rauðvín og spá í spil en undirrituð hefur þann einstaka hæfileika að geta séð ótrúlegustu hluti í spilunum þegar ég er komin í eitt rauðvínsglÖs tíhí  ....  Nú við stelpurnar erum þekktar fyrir mikinn dugnað og erum allar hörkutól tvær í Bootcamp  og ein í kicbox og það sýndi sig þegar hver tappinn á fætur öðrum flaug úr flöskunum og ógnarkraftar leystust úr læðingi við örar glasalyftingar.... þetta voru náttúrlega voða lítil glös...held ég ....

Einhvertíman í dag vaknaði ég og fór í verslunarleiðangur með mömmu ....... það viðurkennist að ég hef oft litið betur út , en blessunarlega þá hefur flensa tröllriðið landanum og þar af leiðandi fékk ég bara samúðarsvip frá fólki þegar það leit í náfölt andlitið og syndandi augun hahaha eftir það fór ég upp í hesthús og lagði mig í kaffistofunni og gerði ekki meira þar þann daginn Óákveðinn 
Á morgun verður farið í langan og hressandi reiðtúr á litlu Spök (það nafn á víst ekki um mig) hahaha en hún á það til að vilja ráða ferðinni svo þar mætast tvær frekjur sem báðar vilja ráða svo þetta er allt hið skemmtilegastaBrosandi allavega það dásamlegasta og skemmtilegasta sport sem ég hef stundað.

Ó boy Eurobandið  fer til Serbiu...Selma plís viltu kenna Regínu greyinu að dansa þau eru búin að poppa þetta ágætlega upp en svo kemur hún eins og spítukerling og hossar rassinum og getur ekki meir ....nú er komin tími til að sleppa fram af sér beislinu kona!!! þú ert milljón árum yngri en ég en ég er eins og kvikasilfur við hliðina á þér ...... annars er mér alveg sama Eurivision er bara dásamlegt tækifæri til að halda gott partý og hrinja í það Ullandi

Polski PloskiInga S Halldórsdóttir

Eigum við að ræða það aðeins að í gærkvöldi fékk ég milljón sms á pólsku!! stíluð á mig já já og eitt þeirra svo hljóðandi "Inga sölufulltrui am in Love" HVAÐ ER Í GANGI!!!! eigum við eitthvað að spá í það að það sitji nokkrir pólskir verkamenn í einhverjum gám með hjálmana á hausnum og remax blaðið í fanginu og smsi á rauðhærða villidýrið!!! oj oj oj Öskrandi hehe nei Það er einhver að rúgla í mér og er sá hinn sami beðin um að  gefa sig fram ...þetta er allt í lagi ég er EKKERT að spá í að drepa þig múhahahhaha

eigum við að ræða það eitthvaðInga S Halldórsdóttir

Ég var spurð að því áðan hvort ég væri hætt að blogga og nei sko aldeilis ekki .... ég fann það út að það var milu skynsamlegra að blogga smá heldur en að fara að þrífa ég mein til hvers hehe Ég er viss um að ef ég SECRETA skítinn í burtu þá fer hann ... eða á það ekki að virka þannig tíhí ...... Ég læt ykkur vita hvernig það gengurBrosandi jæja það er náttúrlega allt að verða vitlaust í vinnu hjá mér það sogast að mér spennandi verkefni úr öllum áttum enda stelpan farin að SECRETA  á fullu hahaha...jésús minn ég er að verða svo rík Gráðugur
 Já ég hélt í þá von í smá tíma að ég findi kannski bara kall til að sjá fyrir mér og ég gæti þá unnið minna og hugsað um börnin og heimilið ...reyndar ekkert fyrir mig en samt það var skemmtileg pæling,  sérstaklega einn parturinn af því tíhíhí  Svalur annars hef ég heyrt að heitasti pikk up staðurinn fyrir karlmenn sé á árshátíð hjá Zik Zak og öðrum kvennfata verslunum ....... Stelpur við ættum kannski að skella okkur á árshátíð hjá "Gylfa og Gunnari"  og sjá hvað gerist hahahaUllandi Gætum líka fengið innanbúðar uplýsingar hjá Brodway hvort það eru einhver hönk væntanleg á árshátið þar tihíhí


Jamm helgarinnar :)Inga S Halldórsdóttir

já sælt veri fólkið loksins er ég komin í ástand til að segja frá helginni tíhí
Hún hófst náttúrlega verulega vel þar sem ég hóf störf á REMAX/LIND já já iog eins og lög gera ráð fyrir þá var náttúrlega haldið upp á það með hitting og biljard á Player's alveg hreint hrikalega gaman og svei mér ég held bara að þetta verði svona þarna hehe Nú það var náttúrlega kolvitlaust veður svo við fórum snemma heim og ó boy ég fauk á pinnahælunum eftir allri Player's byggingunni og það er nú ekki eins og ég sé einhver léttavara. Mér náttúrlega tókst að krafsa mig aftur að bílnum á pinnunum hehe en ekki tók betra við því bíllinn ætlaði bara að fjúka dísús þvílíkt veður hehe Jæja svo rann upp laugardagurinn bjartur og fagur og ég græjaði mig á þorrablót í Njálsbúð :) og allt gekk vel hehe. Að vanda var vinafólk mitt búið að redda mér borðherra en þau hafa þó nokkurn áhuga á því að finna handa mér mann Svalur´. Í fyrra fundu þau hann Jón gamla gamall óásjálegur kall um sextugt sem engin í sveitinni vildi hehe og Benna kartöflubónda sem í alvöru leit út eins og rauðhærð kartafla á fimmtugsaldri hahahaHlæjandi Þetta árið ætluðu þau nú aldeilis að slá í gegn og grófu upp vinsælasta piparsvein suðurlands og hestamann náttúrlega  hehe Vissulega betur útlýtandi en fórnarlömb síðasta árs en þau gleymdu að ég er ekki 25kg ljóska í glansbréfi svo hann varð líklega fyrir miklum vonbrigðum tíhíhí en ekki ég, mér finnst ég svo ferlega frábær tíhíUllandi. Þorrablótið stóð til 5 um morguninn og uppúr því var skriðið í koju ég þurfti hinsvegar að mæta í vinnu kl 3 á sunnudag svo ég tók bara léttan beauty blund og keyrði svo í bæinn uppúr hádegi skelþunn í glærahálku hehe mætti svo eins og fín kona á opið hús sem ég hafði aldrei séð áður hehehe bara tær snilld. Ég er hinsvegar rétt að ná upp orku núna og þó það hafi verið gaman, þá er ég ekki viss um að ég leggi í þetta margar helgar hehe

adios

Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Inga S Halldórsdóttir

Tenglar

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...